Video rekkinn

Video rekkinn

Video Rekkinn er þáttur sem kemur út alla mánudaga í umsjón Hildar og Ragnars. Þau gasa um lífið og tilveruna og gasa síðan ennþá meira – með talsvert litlu viti – um nýjustu myndina sem þau voru á í Laugarásbíó. Fylgist endilega með á Facebook-síðu Video Rekkans: https://www.facebook.com/videorekkinn

Episodes

July 12, 2026 62 mins

Í þætti dagsins ræðum við um þegar frægir hitta fræga, bæjarhátíðir um land allt næstu helgi. Við ræðum evrópusambandið á mjög grunnan máta en mestum tíma verjum við að ræða um nýjustu Evil dead myndina Evil Dead Burn.

Listen
Watch
Mark as Played

Í þætti dagsins förum við á dýptina um bæjarhátíðir sem eru haldnar um allt land. Við ræðum HM í fótbolta og tölum svo smá um nýjustu Minions myndina, Minions & Monsters. Þetta er svona meira bæjarhátíðarþáttur þessa vikuna frekar en kvikmyndahlaðvarp 😂

Listen
Watch
Mark as Played

Í þætti dagsins ræðum við bæjarhátíðir á Íslandi af mikilli ástríðu, aðallega af því að okkur finnst myndin sem við ræddum svo afspyrnu leiðinleg. En svona er þetta: nýr mánudagur, nýr þáttur

Listen
Watch
Mark as Played

Í þætti dagsins tölum við um 17 júní, æsta aðdáendur, HM í fótbolta og eina rosalegustu kung fu mynd sem þetta tvíeyki hefur nokkurn tíma séð. 

Listen
Watch
Mark as Played

Sérstakur samstarfsþáttur með Bíófíklum — og við erum tvöfalt fleiri en venjulega, svo við tökum okkur tvöfalt meiri tíma! Á dagskrá eru tjaldstæði, bíóhús og Obsession, en stærsta málið er nýjasta Spielberg-myndin, Disclosure Day!

Listen
Watch
Mark as Played

Í þætti dagsins ræðum við listgjörninga, hetjur samtímans og hetju hvíta tjaldsins — He-Man! Mynd vikunnar er Masters of the Universe .

Listen
Watch
Mark as Played

Í þætti dagsins fjöllum við um Listahátíð í Reykjavík, grillhátíð í Reykjavík, útskriftir í Reykjavík en svo sögur af landsbyggðinni.  Að lokum fjöllum við um sálræna tryllinginn sem er Backrooms.

Listen
Watch
Mark as Played

Í þætti dagsins fjöllum við um nýliðnar kosningar og greinum ástandið aðeins. Við fjöllum einnig um mikilvægi sólarinnar og hversu vel Magnús Hlynur passar inn á Landann, sumir segja meira að segja að Landinn hafi verið stofnaður honum til höfuðs á sínum tíma. Að lokum fjöllum við um hina stórskemmtilegu Star Wars mynd The Mandalorian and Grogu, mynd sem ætti ekki að svíkja neinn. 

Listen
Watch
Mark as Played

Eftir óvænt hlé tökum við aftur upp þráðinn þar sem frá var horfið! Í þætti dagsins ræðum við lífið síðustu vikurnar og förum yfir samskipti systkina. Við gerum kosningabaráttu undanfarinna daga góð skil og að lokum ræðum við nýjustu mynd Guy Ritchie, In the Grey – en þar er mikið um fallegt fólk í fallegum fötum! :)

Listen
Watch
Mark as Played

Jæja góðir hálsar! Vorið er mætt, sumarið er handan við hornið og hryllingsmyndirnar farnar að láta á sér kræla. Við fórum á eina slíka, Lee Cronin´s The Mummy . Það er óhætt að segja að ýmislegt sé um þessa mynd að segja – og það er ekki allt fallegt 👀

Listen
Watch
Mark as Played

Í þætti vikunnar ræðum við umpottun, jarðtengingar á Austurlandi og fólk sem er salt jarðar. En þorra þáttarins verjum við í að ræða hina frábæru I Swear, mynd sem ætti ekki að skilja neinn eftir ósnortin.

Listen
Watch
Mark as Played

Páskaþátturinn 2026 - við ræðum páska, páska og um tvo pípara sem lenda í allskins ævintýrum. 

Listen
Watch
Mark as Played

Í þætti vikunnar förum við yfir ýmislegt. Í tilefni páskahátíðarinnar erum við með fróðleiksmola um pálmasunnudag og köfum ofan í það hvernig þeirri hátíð er lýst í Biblíunni. Við skoðum bústaðarferðir, þá sérstaklega muninn á stráka- og stelpubústöðum. En þorra þáttarins fjöllum við um gaman-, hryllings- og spennumyndina They Will Kill You, sem ætti ekki að valda þeim vonbrigðum sem hafa gaman af skemmtilegum splatter-myndum.&...

Listen
Watch
Mark as Played

Í þætti vikunnar fáum við til okkar góðan gest til að ræða samtakamátt landsbyggðarinnar. En stærsti partur þáttarins fer í umfjöllun okkar um stórmyndina Project Hail Mary, en okkur þótti myndin svo góð að okkur fannst við knúin til að fá líka gest til okkar, svo það væri sagt eitthvað af viti í þættinum. Það er enginn annar en Tómas Valgeirsson, annar þáttastjórnenda Bíófíkla.

Listen
Watch
Mark as Played

Hundraðasti þátturinn er mættur! 🎉 Við stoppum stutt við til að fagna (því við erum hreinlega glötuð að fagna áföngum) og vindum okkur beint í málið. Ruslabrennur, poppstjörnur og allt þar á milli koma við sögu, en stóra málið í dag er hjartnæma bíómyndin  Reminders of Him. 

Listen
Watch
Mark as Played

Í þætti dagsins ræðum við símaöt, snjóhatur landsmanna og hina sívinsælu Óskastund á Rás 1. Við verjum þó bróðurparti tímans í að rýna í stórmyndina The Bride!, en óhætt er að segja að hún hafi klofið kvikmyndaáhugafólk í tvær gjörólíkar fylkingar.

Listen
Watch
Mark as Played
Í þessum þætti fjöllum við um partístand og partískipulag, ræðum dásemdir Ed Harris og förum síðan aðeins á dýptina í nýjustu mynd Glen Powell, How to Make a Killing.
Listen
Watch
Mark as Played

Í þætti dagsins leiðir Hildur okkur í sannleikann um löngu föstu, við fögnum dásemdum konudagsins, ræðum hvítustu keppni alheimsins og margt fleira.

Að lokum förum við yfir Cold Storage, kvikmynd sem við höfðum ýmislegt við að athuga. 

Listen
Watch
Mark as Played

Í þætti dagsins fer mikil orka í að reyna að kryfja af hverju Ragga finnst ekki gaman á skautum, við fáum uppfærslu úr þorrablótsfréttum og fræðumst um villt partí guðfræðinema.

En mestu púðri verjum við í umfjöllun okkar um "Wuthering Heights" sem kom út fyrir skömmu með Margot Robbie og Jacob Elordi í aðalhlutverkum. En hér er á ferðinni ein erótísk mynd🔥 ... meira um það í þættinum.

Listen
Watch
Mark as Played

Í þætti dagsins fáum við fréttir af þorrablótum og ræðum ágæti Skímó og Hafdísar Huldar. Að lokum verjum við nokkrum mínútum í að ræða hina ekki svo skemmtilegu Shelter, nýjustu mynd Jason Statham.

Listen
Watch
Mark as Played

Popular Podcasts

    Hey Jonas! The official Jonas Brothers podcast. Hosted by Kevin, Joe, and Nick Jonas. It’s the Jonas Brothers you know... musicians, actors, and well, yes, brothers. Now, they’re sharing another side of themselves in the playful, intimate, and irreverent way only they can. Spend time with the Jonas Brothers here and stay a little bit longer for deep conversations like never before.

    Stuff You Should Know

    If you've ever wanted to know about champagne, satanism, the Stonewall Uprising, chaos theory, LSD, El Nino, true crime and Rosa Parks, then look no further. Josh and Chuck have you covered.

    Dateline NBC

    Current and classic episodes, featuring compelling true-crime mysteries, powerful documentaries and in-depth investigations. Follow now to get the latest episodes of Dateline NBC completely free, or subscribe to Dateline Premium for ad-free listening and exclusive bonus content: DatelinePremium.com

    The Joe Rogan Experience

    The official podcast of comedian Joe Rogan.

    The Breakfast Club

    The World's Most Dangerous Morning Show, The Breakfast Club, With DJ Envy, Jess Hilarious, And Charlamagne Tha God!

Advertise With Us
Music, radio and podcasts, all free. Listen online or download the iHeart App.

Connect

© 2026 iHeartMedia, Inc.

  • Help
  • Privacy Policy
  • Terms of Use
  • AdChoicesAd Choices