Fotbolti.net

Fotbolti.net

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Episodes

September 14, 2025
Manchester United átti ekki mikinn möguleika í nágrannaslagnum gegn Manchester City í dag. Rúben Amorim er með að meðaltali eitt stig í leik sem stjóri United og spurning hvort hann fari að leita til vinnumálastofnunnar fljótlega. Það var dramatík á Turf Moor þar sem Liverpool skoraði í blálokin og það var líka drama hjá Brentford og Chelsea. Tottenham svaraði slæmu tapi vel og Arsenal var sannfærandi gegn lærisveinum Ange Posteco...
Mark as Played
Þórsarar unnu úrslitaleikinn gegn Þrótturum og vinna því Lengjudeildina. Keflavík vann Selfoss og felldi þá niður í 2. deildina og um leið fóru bakdyraleiðina upp í umspilið. ÍR missti af umspilinu í loka leik þar sem þeir töpuðu fyrir Fylki.Stefán Marteinn Ólafsson mætti aftur að stýra þættinum og með honum voru Sverrir Örn og Haraldur Örn.
Mark as Played
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net. Tómas Þór, Valur Gunnars og Sæbjörn Steinke fara yfir allt það helsta í boltanum. Meðal annars er hitað upp fyrir lokaumferðina í Bestu fyrir tvískiptinguna.
Mark as Played
Loka umferð Lengjudeildarinnar fer fram á Laugardaginn klukkan 14:00 þar sem þrjú lið geta unnið deildina. Þrjú lið eru í hættu á að missa af umspili, og fjögur lið geta endað í fallsæti. Haraldur Örn og Sverrir Örn fóru yfir þetta ásamt Þróttaranum Jóni Ólafssyni sem var sérstakur gestur í þættinum. Einnig var hringt í Sæbjörn Steinke og Stefán Martein.
Mark as Played
September 8, 2025
Villi Neto kíkti til okkar í Hugarburðarbolta Extra og við fórum yfir það helsta. Völdum topp 5 bestu fantasy pikkin það sem af er tímabili. Kaup og sölur liðanna voru rædd og við rýndum í framhaldið eftir þetta landsleikjahlé. Fórum yfir liðin okkar og hverjar fyrirætlanir okkar eru í næstu umferðum.
Mark as Played
Hér er sérstakur aukaþáttur af Innkastinu, þar sem Lengjudeildin er í aðalhlutverki. Elvar Geir, Valur Gunnars og Baldvin Borgars fara yfir málin. Taugarnar voru þandar í 21. umferðinni og í lokaumferðinni verður hreinn úrslitaleikur þegar Þróttur mætir Þór og bæði lið þurfa að sækja til sigurs því Njarðvíkingar eru tilbúnir að stela toppsætinu. Fjölnismenn eru fallnir en lífsbaráttulaugardagur framundan í fallbaráttunni.
Mark as Played
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 6. september. Í upphafi þáttar heyrir Elvar Geir í Frey Alexanderssyni, þjálfara Brann í Noregi en liðið er á leiðinni í Evrópudeildina. Svo fær landsliðið sviðið eftir flottan 5-0 sigur gegn Aserbaídsjan. Ungir leikmenn létu til sín taka en hversu lélegir eru Aserar? Elvar, Tómas Þór og Valur Gunnars gera upp leikinn. Vont tap U21 landsliðsins og komandi leikir í Lengjudeildinni fá ein...
Mark as Played
- Tilkynnum sterkustu 11 leikmenn í hvorri deild ásamt bekk - Hvað sögðu fans? - Tippleikur lokaumferða í 2&3.deild
Mark as Played
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Haraldur Örn Haraldsson.
Mark as Played
Draumamark Dominiks Szobozlai skildi lið Liverpool og Arsenal að um helgina. Man Utd kreisti fram sigur á elleftu stundu. Brighton skellti Man City. West Ham létti pressunni af stjóra sínum með 0-3 sigri í Notthingham. Chelsea sigraði Fulham 2-0 í Lundúna slag á Brúnni og Tottenham lá á heimavelli 0-1 gegn spræku liði Bournemouth.
Mark as Played
Mjög svo áhugaverð umferð í ensku úrvalsdeildinni að baki. Ungverjarnir hjá Liverpool voru öflugir á móti Arsenal með Ungverja í stúkunni, Manchester United náði í kærkominn sigur með taugahrúguna Rúben Amorim á hliðarlínunni og Tottenham gerði eins og Tottenham gerir vanalega. Þá er gluggadagur í dag en þetta væri einhver áhugaverðasti gluggadagur seinni tíma. Guðmundur Aðalsteinn ræddi við Baldvin Már Borgarsson og Magnús Ha...
Mark as Played
Innkast vikunnar og Valur Gunnarsson stýrir þættinum í fjarveru Elvars Geir. Haraldur Örn og sérstakur gestur Gunnlaugur Jónsson fóru yfir umferðina.Víkingur og Breiðablik gerðu jafntefli í frábærum leik, Stjarnan kom til baka gegn KA, ÍA féll á sínum síðasta séns, Afturelding líklegastir að falla með þeim, Valsmenn rændir og KR vinna enn ekki.
Mark as Played
Það var nóg að ræða í Uppbótartímanum á þessu sólríka sunnudagskvöldi. Úrslitaleikur Mjólkurbikars kvenna var hin mesta skemmtun og þá voru Breiðablik og Valur að spila í Evrópu. Svo eru bara þrjár umferðir eftir fram að skiptingu í Bestu deild kvenna. Næstkomandi fimmtudagur verður svakalegur en nánar var rætt um það í þættinum. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur fara yfir allt það helsta í kvennaboltanum.
Mark as Played
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpi þessa vikuna. Elvar Geir, Tómas Þór og Benedikt Bóas fara yfir sviðið. Ljóst er hverjir andstæðingar Breiðabliks verða í Sambandsdeildinni, æsispennandi umferð í Bestu deildinni á sunnudag, Arnar valdi landsliðshóp, enski boltinn og fleira til umræðu.
Mark as Played
Sumarið 1992 skrifuðu Danir sig í sögubækurnar. Þeir mættu til Evrópumótsins í Svíþjóð án þess að hafa unnið sér rétt til þess að spila í mótinu og enduðu sem Evrópumeistarar. Sigurinn var einstakur og eftir mótið var reglum fótboltans breytt. En þessi ótrúlegi árangur kom ekki úr lausu lofti. Hann átti sér langan og áhugaverðan aðdraganda sem við rákum í þessum þætti þar sem við rýnum í söguna um okkar ástsælu frændur og ferð...
Mark as Played
Innkast vikunnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Haraldur Örn. Valsmenn sýndu vígtennurnar eftir hlé, Víkingar með öruggan sigur gegn bikarþunnum Vestramönnum, Óskar Hrafn hatar stundum fótbolta, Árni Snær bjargaði Stjörnunni, gæðalaust í Krikanum, KA á skriði en Fram heldur áfram að færast nær vandræðum.
Mark as Played
Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.Þáttarstjórnendur eru Stefán Marteinn Ólafsson, Sölvi Haraldsson og Haraldur Örn Haraldsson.
Mark as Played
Tottenham lögðu Man City á Etihad sannfærandi. Arsenal löbbuðu yfir Leeds á heimavelli. Brentford sigraði Aston Villa 1-0. Everton með glæstan heimasigur í fyrsta leiknum á nýja stórglæsilega Hill Dickenson stadium. Chelsea kjöldrógu West Ham 1-5 á Ólympíu leikvanginum í London. Man Utd náðu í sterkt stig gegn Fulham í London. Hjálmar Örn skemmtikraftur og Spursari var gestur þáttarins og við fórum yfir umferðina.
Mark as Played
Það var stórkostlegur leikur í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar Newcastle og Liverpool áttust við. Þessi leikur kórónaði skemmtilega aðra umferð deildarinnar þar sem Tottenham lagði Manchester City, Arsenal sýndi flotta takta, Manchester United fór í sama gamla farið og Graham Potter virtist sigraður. Guðmundur Aðalsteinn og Magnús Haukur Harðarson ræddu um umferðina að þessu sinni og tóku helstu sögulínur fyrir.
Mark as Played
Vogarnir komnir á toppinn, alltaf sama sagan með Augnablik og Árborg, ÍH í brunarústum og Úlfarnir með magnað Remontada. - 2-5.deild - Úrslit fyrri umferða - Spurningar frá fans - Tippleikur næstu umferða
Mark as Played

Popular Podcasts

    The latest news in 4 minutes updated every hour, every day.

    Dateline NBC

    Current and classic episodes, featuring compelling true-crime mysteries, powerful documentaries and in-depth investigations. Follow now to get the latest episodes of Dateline NBC completely free, or subscribe to Dateline Premium for ad-free listening and exclusive bonus content: DatelinePremium.com

    The Clay Travis and Buck Sexton Show

    The Clay Travis and Buck Sexton Show. Clay Travis and Buck Sexton tackle the biggest stories in news, politics and current events with intelligence and humor. From the border crisis, to the madness of cancel culture and far-left missteps, Clay and Buck guide listeners through the latest headlines and hot topics with fun and entertaining conversations and opinions.

    Stuff You Should Know

    If you've ever wanted to know about champagne, satanism, the Stonewall Uprising, chaos theory, LSD, El Nino, true crime and Rosa Parks, then look no further. Josh and Chuck have you covered.

    The Charlie Kirk Show

    Charlie is America's hardest working grassroots activist who has your inside scoop on the biggest news of the day and what's really going on behind the headlines. The founder of Turning Point USA and one of social media's most engaged personalities, Charlie is on the front lines of America’s culture war, mobilizing hundreds of thousands of students on over 3,500 college and high school campuses across the country, bringing you your daily dose of clarity in a sea of chaos all from his signature no-holds-barred, unapologetically conservative, freedom-loving point of view. You can also watch Charlie Kirk on Salem News Channel

Advertise With Us
Music, radio and podcasts, all free. Listen online or download the iHeart App.

Connect

© 2025 iHeartMedia, Inc.