Eftirmál

Eftirmál

Fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkels og Nadine Yaghi rifja upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum.

Episodes

October 1, 2026 • 119 mins

Fá mál hafa vakið jafn mikla athygli og óhug og Edition málið svokallaða. Frönsk fjölskylda, hjón og 29 ára dóttir þeirra, komu hingað til lands júní 2025 í þeim tilgangi að fremja sjálfsvíg saman á Edition lúxushótelinu. Þegar lögregla kom á vettvang á  voru eiginmaður og dóttir Ming Ting Mancel látin af völdum stungusára, en Ming Ting sjálf lifði af. Hún afplánar nú 12 ára fangelsisdóm í fangelsinu á Hólmsheiði. Við förum yf...

Listen
Watch
Mark as Played

➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️

Nadine og Þórhildur fara um víðan völl í Öðrum málum. Í þessum þætti ræða þær við Leif Halldórsson rannsóknarlögreglumann sem rifar upp hvarf Birnu Brjánsdóttur, yfirheyrslur yfir Thomasi Möller Olsen og fleiri eftirminnileg mál frá hans ferli. Þá förum við yfir lausa enda í Edition-málinu. 


Listen
Watch
Mark as Played
September 30, 2026 • 5 mins

Þórhildur og Nadine kynna spennandi breytingar og glænýtt systurhlaðvarp Eftirmála - Önnur mál. 

➡️Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is 

Listen
Watch
Mark as Played
July 28, 2026 • 103 mins

Sérsveit ríkislögreglustjóra fór í umfangsmiklar aðgerðir í september 2021 og gerði upptæk þrívíddarprentuð vopn sem talið var að væru ætluð til að fremja hryðjuverk hér á landi. Tveir menn voru handteknir og ákærðir fyrir tilraun til hryðjuverka sem er einsdæmi í íslenskri réttarsögu. Í kjölfarið velktist málið um í réttarkerfinu í fjögur ár og í ljós kom að ekki var allt sem sýndist. Við ræðum við einn sakborninganna og lögmann h...

Listen
Watch
Mark as Played
July 22, 2026 • 79 mins

Leiðangur Johns Snorra Sigurjónssonar á K2, hættulegasta fjall jarðar, í febrúar 2021 átti eftir að reynast örlagaríkur. Hann freistaði þess að verða fyrstur manna til að klífa fjallið að vetrarlagi og þjóðin bæði fylgdist með undirbúningnum að ferðinni og hélt niðri í sér andanum þegar hætti að heyrast frá honum. Farið var í umfangsmiklar leitaraðgerðir á þessu miskunarlausa fjalli í Pakistan, þar sem aðstæður geta breyst á augabr...

Listen
Watch
Mark as Played
July 13, 2026 • 57 mins

Stórtækasta innrás í einkalíf Íslendinga sem nokkru sinni hefur átt sér stað var þegar tölvuþrjótar láku tugþúsundum sms skilaboðum Íslendinga á netið í Vodafone-lekanum árið 2013. Hver sem er gat þannig flett upp persónulegum málum fólks um allt á milli himins og jarðar. Tveimur árum síðar voru svo viðkvæmar persónuupplýsingar yfir 100 Íslendinga sem skráðir voru á framhjáhaldssíðuna Ashley Madison gerðar opinberar og Ice Hot 1 ko...

Listen
Watch
Mark as Played
July 7, 2026 • 72 mins

Haustið 2024 fór hrollur um þjóðina þegar karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn grunaður um að hafa orðið tíu ára dóttur sinni að bana skammt frá Krýsuvíkurvegi. Ýmsar sögusagnir fóru á flug og enn eru spurningar sem lögreglan fékk aldrei svör við. Atburðarásin vakti líka um stórar spurningar um stöðu geðheilbrigðismála hér á landi. Leifur Halldórsson rannsóknarlögreglumaður fór með rannsókn þessa sorglega máls og fer fer yfir þ...

Listen
Watch
Mark as Played
April 1, 2026 • 89 mins

Fá sakamálmál hafa haft jafn mikil áhrif á íslensku þjóðina og morðið á Hannesi Þór Helgasyni árið 2010. Morðið var einstaklega hrottafengið og þaulskipulagt auk þess sem nokkuð langan tíma tók að upplýsa það. Gunnar Rúnar Sigurþórsson játaði verknaðinn en hann var hugfanginn af kærustu Hannesar og hafði fyrir morðið sett ástarjátningu til hennar á YouTube. Patrik Atlason, systursonur Hannesar, var 16 ára þegar frændi hans var myrt...

Listen
Watch
Mark as Played
February 16, 2026 • 65 mins

Átta þúsund manns tóku á móti Magna Ásgeirssyni í Smáralind þegar hann snéri heim eftir þátttöku í raunveruleikaþættinum Rock Star Supernova. Þjóðin stóð á öndinni í þrjá mánuði, vaknaði á nóttunni til að kjósa og  samkeppnisaðilar á markaði fóru í samstillt átak til að koma sem flestum atkvæðum í gegnum símakosningu. Magni lenti í fjórða sæti í keppninni en við heimkomu færði ráðherra honum gjöf frá ríkisstjórninni og þakkir ...

Listen
Watch
Mark as Played
February 2, 2026 • 74 mins

Quang Le, veitingamaðurinn umsvifamikli sem breytti nafni sínu í Davíð Viðarsson, er grunaður um peningaþvætti, mansal, skipulagða glæpastarfsemi og fleira. Hann var handtekinn árið 2024 en bíður enn dóms í málinu sem kennt er við veitingastaðinn Wok On þar sem hann var einn eigenda. Málið er talið vera umfangsmesta mansalsmál Íslandssögunnar, teygir anga sína í ótal áttir og tekur óvænta stefnu oftar en einu sinni. Sveinn Andri Sv...

Listen
Watch
Mark as Played
January 19, 2026 • 54 mins

Yfir 400 íslenskar konur fengu grædda í sig ólöglega silikonpúða á árunum 2000-2010 frá fyrirtækinu PIP. Í brjóstapúðunum var iðnaðarsilikon í stað læknisfræðilegs silikons og voru þeir í mörgum tilvikum byrjaðir að leka. Í Eftirmálum förum við yfir þetta risastóra svikamál og ræðum við eina þeirra sem fékk púðana grædda í sig með skelfilegum afleiðingum. Málið er enn í gangi fyrir dómstólum meira en áratug eftir að það kom upp.&nb...

Listen
Watch
Mark as Played
January 6, 2026 • 68 mins

Sérsveitin réðist inn í húsnæði Skáksambands Íslands með látum í janúar 2018 eftir að dularfullur pakki barst þangað. Um svipað leyti féll íslensk kona fram af svölum á heimili sínu á Spáni og lamaðist. Þessi atvik og fleiri urðu hluti af Skáksambandsmálinu svokallaða, marglaga sakamáli sem líkist einna helst kvikmyndahandriti. Í þættinum förum við yfir atburðarásina með fréttamanninum Sunnu Sæmundsdóttur en stórum spurningum í mál...

Listen
Watch
Mark as Played
December 22, 2025 • 61 mins

Rex Heuermann, sem grunaður er um að vera einn mesti raðmorðingi í sögu Bandaríkjanna, er giftur íslenskri konu að nafni Ása Ellerup og hefur nokkrum sinnum komið hingað til lands. Hann er talinn hafa myrt fjölda kvenna á Gilgo ströndinni í New Jersey og bíður nú réttahalda vestanhafs. Talið er að hann hafi framið einhver ódæðisverkanna á meðan Ása var í fríi með börn þeirra á Íslandi. Við förum yfir þetta umfangsmikla mál í þættin...

Listen
Watch
Mark as Played

Í dimmum og köldum janúarmánuði árið 2024 átti sér stað hræðilegt slys í Grindavík þegar jörðin opnaðist og Lúðvík Pétursson, verktaki sem var við gröfuvinnu á svæðinu, hvarf ofan í sprunguna. Þjóðin stóð á öndinni á meðan fordæmalaus leit fór fram í stórhættulegum aðstæðum. Í þættinum er rætt við dætur Lúðvíks sem vilja endurheimta líkamsleifar föður síns.

Styrktaraðilar Eftirmála eru:

-NOLA snyrtivöruverslun Ármúla ...

Listen
Watch
Mark as Played
February 18, 2025 • 45 mins

Það hefði líklega fáa grunað að uppbygging á gömlum bragga í Nauthólsvík yrði eitt stærsta fréttamál ársins 2018, en það varð raunin. Braggamálið setti samfélagið á hliðina þegar í ljós kom að kostnaður við framkvæmdina hafði farið langt fram úr öllu hófi, meðal annars vegna höfundaréttavarinna stráa sem plantað hafði verið fyrir framan braggann. 

Þátturinn er í boði:
Nettó   
Duck & Rose
Sjöstrand - 15% ...

Listen
Watch
Mark as Played
February 3, 2025 • 53 mins

Í mars 2018 kom upp morðmál á sveitabænum Gýgjarhóli II í uppsveitum Árnessýslu þegar maður varð bróður sínum að bana með hrottafengnum hætti. Málið lamaði samfélagið í sveitinni og  fjölskylda bræðranna sat eftir í sárum. Í þættinum fara börn fórnarlambsins yfir áfallið, baráttuna fyrir dómstólum og hvernig líf þeirra breyttist þennan örlagaríka dag. 

Þátturinn er í boði:
Nettó   
Duck & Rose
Sjöstr...

Listen
Watch
Mark as Played
January 20, 2025 • 48 mins

Í ágúst árið 2000 hrapaði lítil flugvél í sjóinn í Skerjafirði í Reykjavík með sex manns innanborðs. Fólkið var á leið heim eftir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þegar vélin hætti við lendingu á síðustu stundu. Flugslysið vakti strax upp stórar spurningar og varð að risastóru fréttamáli þar sem aðstandendur fórnarlambanna tóku rannsóknina í eigin hendur til að komast að sannleikanum. Friðrik Þór Guðmundsson, faðir sautján ára drengs sem...

Listen
Watch
Mark as Played
December 29, 2024 • 42 mins

Eitt þekktasta sakamál okkar tíma er Öskjuhlíðarmálið eða GAP málið svokallaða. Fá morðmál hafa vakið meiri óhug meðal þjóðarinnar sem hélt niðri í sér andanum á meðan leit stóð yfir af Einari Erni Birgis, farsælum og vinamörgum viðskipta- og íþróttamanni í blóma lífsins. Eftir nokkurra daga leit játaði viðskiptafélagi hans og vinur að hafa myrt hann og komið líkinu fyrir í gjótu á Reykjanesi, en hann hafði sjálfur tekið þátt í lei...

Listen
Watch
Mark as Played
December 20, 2024 • 44 mins

Jón stóri var á árunum 2009 til 2013 umtalaðasti og umdeildasti maður landsins. Hann lifði og hrærðist í undirheimunum og talaði opnskátt um fíkniefnaneyslu og glæpi á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlaviðtölum þar sem allt var látið flakka. Líf hans einkenndist af glamúr og partýstandi en hann átti líka mjög myrkar hliðar. Í Eftirmálum förum við yfir lífshlaup Jóns stóra og ræðum við fyrrum kærustu hans. 
 
Þátturinn ...

Listen
Watch
Mark as Played

Fjölskylda Söndru Sigrúnar Fenton vinnur nú að því með íslenskum lögmanni að reyna að fá hana framselda til Íslands.  Lögmaðurinn hefur rætt við íslensk stjórnvöld og er í sambandi við dómsmálaráðuneytið vegna málsins. Lögmaðurinn og Margrét Fenton, mamma Söndru Sigrúnar, ræða stöðuna í þættinum. 

Listen
Watch
Mark as Played

Popular Podcasts

    If you've ever wanted to know about champagne, satanism, the Stonewall Uprising, chaos theory, LSD, El Nino, true crime and Rosa Parks, then look no further. Josh and Chuck have you covered.

    Dateline NBC

    Current and classic episodes, featuring compelling true-crime mysteries, powerful documentaries and in-depth investigations. Follow now to get the latest episodes of Dateline NBC completely free, or subscribe to Dateline Premium for ad-free listening and exclusive bonus content: DatelinePremium.com

    The Joe Rogan Experience

    The official podcast of comedian Joe Rogan.

    The Clay Travis and Buck Sexton Show

    The Clay Travis and Buck Sexton Show. Clay Travis and Buck Sexton tackle the biggest stories in news, politics and current events with intelligence and humor. From the border crisis, to the madness of cancel culture and far-left missteps, Clay and Buck guide listeners through the latest headlines and hot topics with fun and entertaining conversations and opinions.

    The Breakfast Club

    The World's Most Dangerous Morning Show, The Breakfast Club, With DJ Envy, Jess Hilarious, And Charlamagne Tha God!

Advertise With Us
Music, radio and podcasts, all free. Listen online or download the iHeart App.

Connect

© 2026 iHeartMedia, Inc.

  • Help
  • Privacy Policy
  • Terms of Use
  • AdChoicesAd Choices